Nokia N80 Internet Edition - Úrræ²aleit Spurningar & Svör

background image

Úrræðaleit Spurningar & Svör

119

Úrræðaleit Spurningar & Svör

Aðgangslyklar

Spurning: Hvað er lykilorðið mitt fyrir læsingar-, PIN-, eða

PUK-númerin?

Svar: Sjálfgefna númerið er 12345. Hafðu samband við

söluaðilann ef þú týnir eða gleymir læsingarnúmerinu.
Ef þú gleymir eða týnir PIN- eða PUK-númeri, eða ef þú
hefur ekki fengið slíkt númer, skaltu hafa samband við
símafyrirtækið þitt.
Upplýsingar um lykilorð má fá hjá aðgangsstaðaþjónustu,
líkt og netþjónustuveitu, þjónustuveitu eða símafyrirtæki.

Forrit svarar ekki

Spurning: Hvernig loka ég forriti sem svarar ekki (er frosið)?

Svar: Haltu inni

takkanum til að opna skiptiglugga forrita.

Flettu svo að forritinu og ýttu á

.

Bluetooth tengingar

Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns?

Svar: Kannaðu hvort kveikt sé á Bluetooth í báðum tækjunum.

Gakktu úr skugga um að fjarlægðin á milli tækjanna
tveggja sé ekki meiri en 10 metrar (33 fet) og að ekki séu
veggir eða aðrar hindranir á milli þeirra.
Gakktu úr skugga um að hitt tækið sé stillt á sýnilegt.
Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf.

Spurning: Af hverju get ég ekki slökkt á Bluetooth-tengingu?

Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú slitið

tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á Bluetooth-
tengingunni í tækinu þínu. Veldu

Tenging

>

Bluetooth

>

Slökkt

.

Vafraþjónusta

Spurning: Hvað geri ég ef þessi skilaboð birtast:

Enginn gildur aðgangsstaður tilgreindur. Tilgreina í
Þjónustustillingum.

?

Svar: Tilgreindu réttar stillingar fyrir vafrann. Þú færð

leiðbeiningar hjá þjónustuveitunni þinni.

Myndavél

Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?

Svar: Fjarlægðu plasthlífina sem er yfir skjánum og

myndavélarlinsunni. Gakktu úr skugga um að hlífðargler
myndavélarlinsunnar sé hreint.

Skjár

Spurning: Hvers vegna sjást daufir, upplitaðir eða skærir

punktar á skjánum þegar ég kveiki á tækinu?

Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa skjágerð. Á sumum

skjám geta verið dílar eða punktar sem lýsa annaðhvort
stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða galla heldur
eðlilegan hlut.

background image

Úrræðaleit Spurningar & Svör

120

Heimakerfi (UPnP)

Spurning: Af hverju birtast skrárnar sem ég hef vistað í

tækinu mínu ekki í hinum tækjunum?

Svar: Gakktu úr skugga um að þú hafir stillt heimakerfið, að

kveikt sé á

Samnýting efnis

í tækinu þínu og að hitt tækið

styðji UPnP-staðalinn.

Notkunarskrá

Spurning: Af hverju er notkunarskráin tóm?

Svar: Ef til vill hefurðu valið síu og engin samskipti hafa verið

skráð sem hæfa henni. Hægt er að skoða öll samskipti með
því að velja

Forrit. mín

>

Notkunarskrá

>

Valkostir

>

Sía

>

Öll samskipti

.

Lítið minni

Spurning: Hvað get ég gert ef minnið í tækinu er lítið?

Svar: Hægt er að eyða eftirfarandi hlutum reglulega til að

komast hjá því að minnið fyllist:

Skilaboðum úr

Innhólf

,

Uppköst

og

Sendir hlutir

möppunum í

Skilaboð

Móttekinn tölvupóst úr minni tækisins

Vistuðum vefsíðum

Myndum í

Gallerí

Til að eyða tengiliðaupplýsingum, dagbókaratriðum, teljurum,
kostnaðarteljurum, leikjastigum, eða hvaða gögnum öðrum
sem er, skaltu opna viðkomandi forrit til að fjarlægja gögnin.
Ef verið er að eyða mörgum atriðum og ein eftirfarandi
athugasemda birtist:

Ekki nægilegt minni fyrir aðgerð. Eyða

þarf einhv. gögnum fyrst.

eða

Lítið minni eftir. Eyða þarf

einhverjum gögnum.

skaltu reyna að eyða einu atriði í einu

(með því að eyða fyrst því sem tekur minnst pláss).

Spurning: Hvernig get ég vistað gögnin mín annars staðar?

Svar: Vistaðu gögnin með einni af eftirfarandi leiðum:

Notaðu Nokia PC Suite til að búa til öryggisafrit af öllum
gögnum og setja það á samhæfa tölvu.

Sendu myndir á tölvupóstfangið þitt og vistaðu svo
myndirnar í tölvunni.

Sendu gögn með Bluetooth-tengingu í samhæft tæki.

Vistaðu gögn á samhæfu minniskorti.

Skilaboð

Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið?

Svar: Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki símanúmer né

tölvupóstfang. Bættu upplýsingunum sem vantar á
tengiliðaspjaldið í

Tengiliðir

.

Margmiðlunarskilaboð

Spurning: Hvað á ég að gera þegar tækið getur ekki tekið við

margmiðlunarskilaboðum vegna þess að minnið er fullt?

Svar: Í villuboðunum koma fram upplýsingar um hvað þarf að

losa um mikið minni:

Ekki hægt að sækja skilaboð. Eyða

verður einhverjum gögnum fyrst.

Til að sjá hvers konar

gögn eru vistuð og hversu mikið minni mismunandi gögn
nota skaltu velja

Skráarstjórn

>

Valkostir

>

Minnisupplýsingar

.

background image

Úrræðaleit Spurningar & Svör

121

Spurning: Tilkynningin

Sæki skilaboð

birtist í stutta stund.

Hvað er að?

Svar: Tækið er að reyna að sækja margmiðlunarskilaboð frá

skilaboðastöðinni.
Gakktu úr skugga um að stillingar fyrir
margmiðlunarskilaboð séu rétt valdar og að símanúmer og
aðrar upplýsingar séu réttar. Veldu

Skilaboð

>

Valkostir

>

Stillingar

>

MMS

.

Spurning: Hvernig get ég lokað gagnatengingu þegar tækið

kemur henni alltaf á aftur?

Svar: Til að koma í veg fyrir að tækið komi á gagnatengingu

skaltu velja

Skilaboð

og svo eitt af eftirtöldu:

Þegar boð berast

>

Sækja síðar

— Til að láta

skilaboðamiðstöð margmiðlunarskilaboða vista skilaboðin
sem þú vilt sækja síðar, t.d. eftir að þú hefur farið yfir
stillingarnar. Eftir þessa breytingu þarf tækið að senda
upplýsingaboð til símkerfisins. Til að sækja skilaboðin strax
skaltu velja

Sækja strax

.

Þegar boð berast

>

Hafna skilaboðum

— Til að hafna

öllum margmiðlunarskilaboðum sem þér hafa verið send.
Eftir þessa breytingu þarf tækið að senda upplýsingaboð til
símkerfisins og skilaboðamiðstöð margmiðlunar-boðanna
eyðir öllum margmiðlunarskilaboðum sem bíða þess að
verða sótt.

Móttaka margm.

>

Óvirk

— Til að hundsa öll

margmiðlunarskilaboð sem berast. Eftir þessa breytingu
kemur tækið aldrei á tengingu við farsímakerfið vegna
margmiðlunarskilaboða.

Tenging við tölvu

Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með að tengja tækið

við tölvuna mína?

Svar: Gakktu úr skugga um að Nokia PC Suite sé uppsett og í

gangi á tölvunni þinni. Nánari upplýsingar er að finna í
notendahandbókinni fyrir Nokia PC Suite á geisladiskinum.
Til að sjá upplýsingar um notkun PC Suite skaltu skoða
hjálparvalmyndina í Nokia PC Suite eða þjónustusíðurnar
á www.nokia.com.

þráðlaust LAN

Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð aðgangsstað fyrir

þráðlaust staðarnet (WLAN) þó svo ég viti að ég er innan
móttökusvæðis hans?

Svar: Verið getur að aðgangsstaðurinn noti falinn SSID-kóða.

Þú getur aðeins fengið aðgang að netkerfum sem nota
falinn SSID-kóða ef þú veist kóðann og hefur búið til
internetaðgangsstað fyrir þráðlausa staðarnetið í Nokia
tækinu þínu.

Spurning: Hvernig slekk ég á þráðlausu staðarneti í Nokia

tækinu mínu?

Svar: Það slokknar á þráðlausu tengingunni á Nokia-tækinu

þegar ekki er reynt að tengjast eða þú ert ekki tengdur
neinum aðgangsstað, eða þegar leitað er að tiltækum
netkerfum. Til að draga enn frekar úr rafhlöðueyðslu er
hægt að stilla Nokia-tækið þannig að það leiti ekki eða
leiti sjaldnar að tiltækum netkerfum í bakgrunni. Það
slokknar á þráðlausu tengingunni á milli bakgrunnsleita.

background image

Úrræðaleit Spurningar & Svör

122

Til að breyta stillingum bakgrunnsleitar:

1

Ýttu á

og veldu

Verkfæri

>

Stillingar

>

Samband

>

Þráðlaust staðarnet

.

2

Breyttu gildi

Sýna tiltæki

í

Aldrei

til að stöðva leit í

bakgrunni eða til að auka tíðni bakgrunnsleitar í

Finna

staðarnet

.

3

Breytingarnar eru vistaðar með því að ýta á

Til baka

.

Þegar

Finna staðarnet

er stillt á

Aldrei

, er táknið fyrir tiltækt

þráðlaust net ekki sýnt í biðstöðu. Þú getur hins vegar enn
leitað handvirkt að tiltækum þráðlausum netkerfum og tengst
þráðlausu neti eins og venjulega.