Nokia N80 Internet Edition - Umhir²a og vi²hald

background image

Umhirða og viðhald

126

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara
þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við
að halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns
vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef
tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því að
þorna alveg áður en rafhlaða er sett í aftur.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né
geyma það þar. Færanlegu hlutirnir og rafrænir hlutar
þess geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur
dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður og
undið eða brætt sum plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar
upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því
og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í
þessari handbók.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista
það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásarspjöld
og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða
sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega
hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa linsur
(svo sem myndavélar-, fjarlægðarnema- og
ljósnemalinsur).

Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða
samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á
þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að brjóta
í bága við ákvæði laga og reglugerða um senditæki.

Nota skal hleðslutæki innandyra.

Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem á að geyma
(eins og tengiliðum og dagbókaratriðum) áður en tækið er
sent til þjónustuaðila.

Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig
hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og fjarlægja
rafhlöðuna. Muna skal að búa til öryggisafrit af öllum
mikilvægum gögnum.

Allar ofangreindar ábendingar eiga jafnt við tækið, rafhlöðuna,
hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt skal
fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til
lagfæringar.

background image

Umhirða og viðhald

127