Nokia N80 Internet Edition - Lei²beiningar um sannprófun árafhlö²um frá Nokia

background image

Leiðbeiningar um sannprófun
á rafhlöðum frá Nokia

Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til
að tryggja að þú fáir rafhlöður frá Nokia skaltu kaupa þær hjá
viðurkenndum söluaðila Nokia, ganga úr skugga um að 'Nokia
Original Enhancements' táknið sé á umbúðunum og skoða
heilmyndarmiðann á eftirfarandi hátt:

Þó svo að þessum fjórum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það
ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé sannvottuð.
Ef þú hefur minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé
ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara
með hana til viðurkennds þjónustu- eða söluaðila Nokia.
Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna sannvottun
rafhlöðunnar. Ef ekki er hægt að staðfesta sannvottunina
skaltu skila rafhlöðunni til verslunarinnar þar sem þú keyptir
hana.

Sannvottun heilmyndar

1

Þegar þú horfir á heilmyndina á
miðanum ættirðu að sjá Nokia-
handabandstáknið frá einu
sjónarhorni og 'Nokia Original
Enhancements' táknið frá öðru.

2

Þegar þú snýrð heilmyndinni til
vinstri, hægri, upp eða niður
ættirðu að sjá 1, 2, 3, eða 4
punkta, allt eftir staðsetningu
hennar.

3

Skafðu hliðina á miðanum og þá á
að koma í ljós 20-stafa tala, t.d.
12345678919876543210. Snúðu
rafhlöðunni þannig að tölurnar vísi
upp. 20 stafa talan byrjar í efri
röðinni og heldur áfram í neðri
röðinni.

background image

Upplýsingar um rafhlöðu

125

4

Fáðu staðfestingu á því að
20 stafa talan sé gild með því að
fylgja leiðbeiningunum á
www.nokia.com/batterycheck.

Til að búa til textaskilaboð skaltu slá
inn 20 stafa töluna, t.d.
12345678919876543210, og senda
hana á +44 7786 200276.

Til að búa til textaskilaboð,

Fyrir Asíulönd við Kyrrahaf, að Indlandi undanskildu: Sláðu
inn 20 stafa töluna, t.d. 12345678919876543210, og
sendu hana á +61 427151515.

Aðeins fyrir Indland: Sláðu inn 'Battery', þá 20 stafa töluna,
t.d. Battery 12345678919876543210, og sendu hana á
5555.

Gjaldskrá innlendra og erlendra símafyrirtækja gildir.

Þá áttu að fá skilaboð sem segja til um hvort hægt er að
sannvotta töluna eða ekki.

Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?

Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með
heilmyndinni á miðanum sé ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu ekki
nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda
þjónustuaðila eða sölustaðar Nokia til að fá aðstoð. Notkun
rafhlaða sem eru ekki samþykktar af framleiðanda getur verið
hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið og
aukahlutir þess virki ekki sem skyldi eða skemmist. Notkun
þeirra kann jafnframt að ógilda allar þær samþykktir eða
ábyrgðir sem eiga við tækið.

Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er að finna á
www.nokia.com/battery.