Stillingar
Veldu
Valkostir
>
Stillingar
og svo úr eftirfarandi:
Aðgangsstaður
— Til að breyta sjálfvöldum aðgangsstað.
Sjá ‘Samband’ á bls. 106. Sumir eða allir aðgangsstaðir
gætu verið forstilltir fyrir tækið þitt af þjónustuveitunni og
því getur verið að þú getir ekki skipt um, búið til, breytt eða
fjarlægt aðgangsstaði.
Heimasíða
— Til að velja heimasíðuna.
Hle. mynda & hljóða
— Til að velja hvort þú vilt hlaða inn
myndum á síðum. Ef þú velur
Nei
, geturðu hlaðið inn
myndum síðar með því að velja
Valkostir
>
Sýna myndir
.
Leturstærð
— Til að velja leturstærðina.
Sjálfvalin kóðun
— Til að velja aðra kóðun ef stafir birtast
ekki á réttan hátt (fer eftir tungumáli).
Sjálfvirk bókamerki
— Til að kveikja eða slökkva á
sjálfvirkri vistun bókamerkja. Ef þú vilt halda áfram að
vista bókamerki sjálfkrafa, en ekki birta möppuna í
bókamerkjaskjánum, skaltu velja
Fela möppu
.
Skjástærð
— Til að velja hvað birtist þegar þú vafrar:
Bara
valda takka
eða
Allur skjár
.
Leitarsíða
— Til að velja hvaða síða opnast þegar þú velur
Valm. í leiðarkerfi
>
Opna leitarsíðu
í
bókamerkjaskjánum eða þegar þú vafrar.
Hljóðstyrkur
— Veldu hljóðstyrkinn ef þú vilt að vafrinn
spili hljóð af vefsíðum.
Sækja
— Ef þú vilt að útlit síðunnar birtist eins
nákvæmlega og hægt er í
Lítill skjár
skaltu velja
Út frá
gæðum
. Ef þú vilt ekki hlaða niður ytri CSS-stílsniðum
skaltu velja
Út frá hraða
.
Fótspor
— Til að kveikja eða slökkva á móttöku og
sendingu fótspora.
Java/ECMA forskrift
— Til að leyfa eða leyfa ekki
forskriftir.
Öryggisviðvaranir
— Til að fela eða birta
öryggisviðvaranir.
Þjónusta
78
Staðf. DTMF-send.
— Til að velja hvort staðfesta þurfi
sendingu DTMF-tóna meðan á símtali stendur. Sjá
einnig ‘Valkostir meðan á símtali stendur’ á bls. 71.