
Mikilvægar upplýsingar um öryggi
Þegar þú stillir þráðlaust staðarnet í heimahúsi skaltu
kveikja á dulkóðuninni, fyrst í aðgangsstaðatækinu eða
beininum og svo í hinum tækjunum sem eru tengd við það.
Nánari upplýsingar er að finna í fylgiskjölum tækjanna.
Halda skal öllum númerum leyndum og geyma þau á
öruggum stað fjarri tækjunum.
Upplýsingar um hvernig á að skoða eða breyta
stillingunum fyrir netaðgangsstað í Nokia N80 tækinu er
að finna í ‘Aðgangsstaðir’ á bls. 107.
Ef þú notar sértæka stillingu til að búa til heimakerfi með
samhæfu tæki skaltu nota eina af dulkóðunaraðferðunum
í
Öryggi þráðl. staðarnets
þegar þú stillir
netaðgangsstaðinn. Þetta minnkar líkurnar á að
óviðkomandi komist inn á kerfið.
Tækið lætur þig vita ef annað tæki reynir að tengjast við
það og heimakerfið. Ekki samþykkja beiðnir um tengingu
frá tækjum sem þú þekkir ekki.
Ef þú notar þráðlaust staðarnet í kerfum sem án
dulkóðunar skaltu slökkva á samnýtingu Nokia N80 skráa
með öðrum tækjum, eða velja að samnýta ekki einkaskrár.
Upplýsingar um hvernig á að breyta öryggisstillingum er að
finna í ‘Heimanet’ á bls. 36.