
Heimsklukka
Heimsklukkan er opnuð með því að opna
Klukka
og ýta á
. Í skjá heimsklukkunnar er hægt að sjá tímann í hinum
ýmsu borgum.
Borgum er bætt á listann með því að velja
Valkostir
>
Bæta við borg
. Það er að hámarki hægt að bæta
15 borgum við listann.
Til að tilgreina borgina sem þú ert staddur/stödd í skaltu
velja borg og síðan
Valkostir
>
Núverandi borg mín
.
Borgin birtist í aðalskjá klukkunnar og tíma tækisins er
breytt til samræmis við hana. Gakktu úr skugga um að
tíminn sé réttur og að hann passi við tímabeltið.