Nokia N80 Internet Edition - Myndsímtöl

background image

Myndsímtöl

Í myndsímtali (sérþjónusta) getur þú og viðmælandi þinn
séð rauntíma hreyfimynd af hvor öðrum. Viðtakandi þinn
sér þá hreyfimyndina sem myndavélin þín tekur.

Til að geta hringt myndsímtal þarftu USIM-kort og síminn
þarf að vera innan þjónustusvæðis UMTS-símkerfis.
Símafyrirtækið þitt eða þjónustuveitan þín gefa
upplýsingar um framboð og áskrift að myndsímtölum.

Aðeins er hægt að koma á myndsímtali við einn aðila í
einu. Hægt er að koma á myndsímtali við samhæft tæki
eða ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að koma á

myndsímtölum þegar annað símtal, myndsímtal eða
gagnasímtal er í gangi.

Tákn:

Tækið er ekki að taka við hreyfimynd (annað hvort

sendir viðtakandinn ekki hreyfimyndina eða þá að
símkerfið sendir hana ekki).

Þú hefur hafnað myndsendingu úr tækinu þínu.

Upplýsingar um hvernig á að senda kyrrmynd í stað
hreyfimyndar er að finna í ‘Símtalsstillingar’, bls. 105.

Jafnvel þó þú hafnir myndsendingu í myndsímtali er tekið
gjald fyrir símtalið sem myndsímtal. Upplýsingar um verð
fást hjá símafyrirtæki eða þjónustuveitu.

1

Til að koma á
myndsímtali skaltu slá
inn númerið í biðstöðu
eða velja

Tengiliðir

og

svo tengilið.

2

Veldu síðan

Valkostir

>

Hringja

>

Myndsímtal

.

Það getur tekið dálítinn tíma
að koma á myndsímtali.

Bíð

eftir hreyfimynd

birtist. Ef

ekki tekst að koma á
tengingu (t.d. ef símkerfið styður ekki myndsímtöl eða
móttökutækið er ekki samhæft), er spurt hvort þú viljir
hringja venjulegt símtal eða senda textaskilaboð í staðinn.

background image

Símtöl

68

Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær
hreyfimyndir og heyrt hljóð úr hátalaranum.
Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu (

) og þá

heyrir þú aðeins í honum og sérð að auki kyrrmynd eða
gráan bakgrunn.

Til að velja hvað er sent skaltu velja

Virkja

/

Óvirkja

>

Hreyfimynd

,

Hljóð

eða

Hljóð & hreyfimynd

.

Veldu

Stækka

eða

Minnka

til að stækka eða minnka

myndina af þér. Stækkunar/minnkunarvísirinn sést efst á
skjánum.

Hægt er að víxla myndunum á skjánum með því að velja

Víxla myndum

.

Myndsímtalinu er lokið með því að ýta á

.