
Stillingar
Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga
Tenging á milli einstaklinga er einnig þekkt undir heitinu
SIP-tenging (Session Initiation Protocol). SIP-sniðstillingar
þurfa að hafa verið valdar í tækinu áður en hægt er að nota
Samn. hre.m.
. Uppsetning SIP-sniðs gerir þér kleift að
koma á rauntímasambandi við samhæft tæki. SIP-sniðið
verður einnig að geta móttekið samnýtingu.
SIP-stillingarnar fást hjá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni. Nauðsynlegt er að vista þær í tækinu.
Símafyrirtækið þitt gæti sent þér stillingarnar í
ljósvakaboðum eða gefið þér upp nauðsynlegar stillingar.
Ef þú veist SIP-vistfang viðtakandans getur þú slegið það
inn á tengiliðaspjald hans. Opnaðu
Tengiliðir
í
aðalvalmyndinni og síðan tengiliðaspjaldið (eða búðu til
nýtt spjald ef ekkert spjald hefur verið búið til áður). Veldu
Valkostir
>
Bæta við upplýsing.
>
SIP
eða
Samnýttur
skjár
(réttur valkostur veltur á símafyrirtækinu). Sláðu inn
SIP-vistfangið á forminu notandanafn@vistfang (hægt er
að nota IP-tölu í stað vistfangs).
Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu einnig
notað vistað símanúmer hans, ásamt landsnúmerinu (t.d.
+354) til að deila hreyfimynd. Ef símanúmer sem er vistað
í
Tengiliðir
inniheldur ekki landsnúmerið getur þú slegið
það inn ásamt landsnúmerinu þegar þú sendir boðið.
UMTS-tengistillingar
Settu upp UMTS-tenginguna þína á eftirfarandi hátt:
• Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að gerast
áskrifandi að UMTS-þjónustunni.
• Gakktu úr skugga um að UMTS-aðgangsstaða-
stillingarnar hafi verið rétt valdar. Frekari upplýsingar
er að finna í ‘Samband’ á bls. 106.