
Raddstýrð hringing
Tækið styður raddskipanir. Raddskipanir velta ekki á rödd
notandans þannig að ekki þarf að taka upp raddmerki áður
en þær eru notaðar. Þess í stað býr tækið til raddmerki fyrir
færslur í tengiliðum og ber það raddmerki sem notandinn
segir saman við þær. Raddkennslin í tækinu laga sig að
rödd aðalnotandans til að líklegra sé að tækið beri kennsl
á raddskipunina.
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið sem er
vistað á tengiliðaspjaldinu. Til að hlusta á tilbúið
raddmerki skaltu opna tengiliðaspjald og velja
Valkostir
>
Spila raddmerki
.
Hringt með raddmerki
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið
í hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti
ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar
aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn í
notkun. Haltu tækinu nálægt þér þegar þú berð fram
raddmerkið.
1
Haltu inni hægri valtakkanum í biðstöðu til að hefja
raddstýrða hringingu. Ef þú notar samhæft höfuðtól
með höfuðtólstakka skaltu halda honum inni til að
hefja raddstýrða hringingu.

Símtöl
67
2
Stuttur tónn heyrist og textinn
Tala nú
birtist á
skjánum. Berðu skýrt fram nafnið eða gælunafnið sem
er vistað á tengiliðaspjaldinu.
3
Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á því
tungumáli sem er valið og birtir nafnið og
símanúmerið. Eftir 2,5 sekúndu hringir tækið í númerið.
Ef tækið valdi rangan tengilið skaltu velja
Næsta
til að
skoða aðrar niðurstöður í lista eða
Hætta
til að hætta
við raddstýrða hringingu.
Ef nokkur númer eru vistuð undir nafninu velur tækið
sjálfgefna númerið, hafi það verið tilgreint. Annars velur
tækið fyrsta númerið í eftirfarandi röð:
Farsími
,
Farsími
(heima)
,
Farsími (vinna)
,
Sími
,
Sími (heima)
og
Sími
(vinna)
.