Nokia N80 Internet Edition - Skilabo²

background image

Skilaboð

49

Skilaboð

Ýttu á

og veldu

Skilaboð

(sérþjónusta). Í

Skilaboð

er

hægt að búa til, senda, taka við, skoða, breyta og
skipuleggja textaskilaboð, margmiðlunarskilaboð,
tölvupóstskeyti og sérstök textaskilaboð sem innihalda
gögn. Einnig er hægt að taka við vefþjónustuboðum,
skilaboðum frá endurvarpa og senda þjónustuskipanir.
Skilaboð og gögn sem tekið hefur verið við um Bluetooth
eða innrauða tengingu eru vistuð í

Innhólf

möppunni

undir

Skilaboð

.

Skilaboð eru búin til með því að velja

Ný skilaboð

.

Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og
birt margmiðlunarskilaboð. Útlit skilaboða getur verið
breytilegt eftir móttökutækinu.

Skilaboð

inniheldur eftirfarandi möppur:

Innhólf

— Inniheldur móttekin skilaboð, fyrir utan

tölvupóstskeyti og skilaboða frá endurvarpa.
Tölvupóstskeyti eru vistuð í

Pósthólf

.

Mínar möppur

— Til að skipuleggja skilaboð í möppur.

Ábending! Hægt er að nota textana í

skjalasniðsmöppunni til að komast hjá því að
endurskrifa skilaboð sem eru send oft.

Pósthólf

— Hér er hægt að tengjast við ytra pósthólf

til að sækja nýjan tölvupóst og skoða eldri tölvupóst án
tengingar. Sjá ‘Tölvupóstur’ á bls. 59.

Uppköst

— Inniheldur drög að skilaboðum sem hafa

ekki verið send.

Sendir hlutir

— Inniheldur síðustu 20 skilaboðin sem

voru send, fyrir utan þau sem hafa verið send um
Bluetooth eða innrautt tengi. Upplýsingar um hvernig á að
breyta fjölda vistaðra skilaboða er að finna í ‘Annað
stillingar’ á bls. 61.

Úthólf

— Inniheldur skilaboð sem bíða sendingar.

Dæmi: Skilaboð eru t.d. sett í úthólfið þegar tækið er

utan þjónustusvæðis. Einnig er hægt að biðja um að
tölvupóstskeyti verði send næst þegar tengst er við ytra
pósthólf.

Tilkynningar

— Hægt er að biðja símkerfið

að senda skilatilkynningar fyrir send texta- og
margmiðlunarskilaboð (sérþjónusta). Ekki er víst að hægt
sé að fá skilatilkynningar fyrir margmiðlunarskilaboð sem
eru send á tölvupóstfang.

Ábending! Þegar þú opnar einhverja af sjálfgefnu

möppunum geturðu ýtt á

eða

til að skipta á

milli mappa.

background image

Skilaboð

50

Til að slá inn og senda þjónustubeiðnir til þjónustuveitu
(einnig þekktar sem USSD-skipanir), líkt og skipanir um að
virkja sérþjónustu, skaltu velja

Valkostir

>

Þjónustuskipun

í aðalvalmynd

Skilaboð

.

Með

Upplýs. frá endurvarpa

(sérþjónusta) getur þú

fengið skilaboð frá þjónustuveitunni um mismunandi efni,
líkt og veður og umferð. Upplýsingar um hvaða efni eru í
boði og efnisnúmer þeirra fást hjá þjónustu-veitunni. Í
aðalskjá

Skilaboð

skaltu velja

Valkostir

>

Upplýs. frá

endurvarpa

. Í aðalskjánum sést staða efnis, númer þess,

heiti og hvort það hefur verið merkt sem (

) til að fylgja

því eftir.

Ekki er hægt að fá upplýsingar frá endurvarpa í UMTS-
símkerfum. Pakkagagnatenging getur valdið því að
upplýsingar frá endurvarpa berist ekki.