Snið án tengingar
Ótengdur
sniðið gerir þér kleift að nota símann án þess að
tengjast við símkerfið. Þegar þú velur sniðið
Ótengdur
er
slökkt á tengingunni við símkerfið og það gefið til kynna
með
í sendistyrksvísinum. Lokað er á allar þráðlausar
sendingar til og frá tækinu. Ef reynt er að senda skilaboð
er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan sem þau eru send
síðar.
Viðvörun: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja,
svara símtölum eða nota aðra valkosti þar sem þörf er
á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt
að hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið.
Eigi að hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina
með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst
skal slá inn lykilnúmerið.
Þegar þú hefur valið
Ótengdur
sniðið geturðu áfram notað
þráðlaust staðarnet (ef það er til staðar), t.d. til þess að lesa
tölvupóst eða vafra á internetinu. Mundu að fara að öllum
viðeigandi öryggisreglum þegar þráðlausri
staðarnetstengingu er komið á og hún notuð. Sjá
‘Þráðlaust staðarnet’ á bls. 14.
Slökkt er á
Ótengdur
sniðinu með því að ýta á rofann og
velja annað snið. Þá verða þráðlaus samskipti aftur
möguleg (ef nægur sendistyrkur er fyrir hendi). Ef kveikt er
á Bluetooth-tengingu þegar
Ótengdur
sniðið er notað er
slökkt á henni. Bluetooth-tengingunni er sjálfkrafa komið
á aftur eftir að slökkt er á
Ótengdur
sniðinu. Sjá ‘Stillingar’
á bls. 91.