Nokia N80 Internet Edition - Innrau² tenging

background image

Innrauð tenging

Hægt er að flytja gögn líkt og nafnspjöld, dagbókaratriði
og skrár milli samhæfra tækja um innrauða tengingu.

Ekki má beina innrauðum (IR) geisla að augum eða láta
hann trufla önnur innrauð tæki. Þetta tæki er leysitæki í
flokki 1 (Class 1 laser product).

Sending og móttaka gagna um innrautt tengi

1

Tryggja þarf að innrauðu tengi tækjanna sem eru
notuð til að senda og taka á móti gögnum vísi hvort að
öðru og að engar hindranir séu á milli þeirra. Æskileg
fjarlægð milli tækjanna er að hámarki einn metri
(3 fet).

2

Notandi viðtökutækisins kveikir á innrauða tenginu.
Kveikt er á innrauðu tengi tækisins með því að ýta á

og velja

Tenging

>

Innrauð

.

3

Notandi senditækisins velur að hefja gagnaflutninginn.
Til að senda gögn um innrautt tengi skaltu velja skrá í
forriti eða stjórnanda forrita og velja

Valkostir

>

Senda

>

Með IR

.

background image

Tengingar

94

Ef gagnasending hefst ekki innan mínútu eftir að kveikt
hefur verið á innrauða tenginu er slökkt á tengingunni.

Allir mótteknir hlutir eru settir í möppuna

Innhólf

í

Skilaboð

. Ný innrauð skilaboð eru auðkennd með

.

Þegar

blikkar er tækið að reyna að koma á tengingu

eða þá að tenging hefur rofnað.

Þegar

er viðvarandi á skjánum er innrauða

tengingin virk og tækið reiðubúið til að senda gögn og
taka á móti þeim um innrauða tengið.