
Öryggi
Sími og SIM
Beðið um PIN-númer
— Þegar kveikt er á þessar stillingu
er beðið um númerið í hvert skipti sem kveikt er á tækinu.
Ekki er víst að öll SIM-kort leyfi að slökkt sé á beiðni um
PIN-númer. Sjá ‘Útskýringar á PIN-númerum og númerum
fyrir læsingu’ á bls. 111.
PIN-númer
,
PIN2-númer
og
Númer fyrir læsingu
— Hægt
er að breyta læsingarnúmerinu auk PIN- og PIN2-
númeranna. Þessi númer geta aðeins innihaldið tölur frá 0
til 9. Hafa skal samband við þjónustuveituna ef þessi
númer glatast. Sjá ‘Útskýringar á PIN-númerum og
númerum fyrir læsingu’ á bls. 111.
Forðastu að nota aðgangsnúmer sem líkist
neyðarnúmerum, t.d. 112, til að komast hjá því að hringja
óvart í neyðarnúmer.
Sjálfv. læsingartími
— Þú getur valið tímann sem líður þar
til tækið læsist sjálfkrafa. Veldu
Enginn
til að slökkva á
þessari stillingu.
Tækið er opnað með því að slá inn læsingarnúmer.
Þegar tækið er læst getur samt verið hægt að hringja í
opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.

Verkfæri
111
Ábending! Tækinu er læst handvirkt með því að ýta á
. Þá opnast listi yfir skipanir. Veldu
Læsa síma
.
Læsa ef skipt um SIM
— Þú getur látið tækið biðja um
númerið fyrir læsingu þegar óþekkt SIM-kort er sett í það.
Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort sem það
viðurkennir sem kort eigandans.
Lok. notendahópur
— Þú getur tilgreint hóp fólks sem þú
getur hringt í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).
Þegar símtöl eru takmörkuð við lokaða notendahópa getur
samt verið hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem
er forritað í tækið.
Staðfesta SIM-þjón.
— Þú getur látið tækið birta
staðfestingarboð þegar þú notar SIM-kortsþjónustu
(sérþjónusta).
Útskýringar á PIN-númerum og númerum fyrir læsingu
Hafa skal samband við þjónustuveituna ef þessi númer
glatast.
PIN-númer — þetta númer kemur í veg fyrir að SIM-kortið
sé notað í leyfisleysi. PIN-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir
yfirleitt með SIM-kortinu. Þegar PIN-númerið er slegið
rangt inn þrisvar sinnum er númerinu lokað og slá þarft inn
PUK-númerið til að opna það.
UPIN-númer — númerið kann að fylgja með USIM-kortinu.
USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til að nota í
UMTS-farsímum.
PIN2-númer — númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir sumum
SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta notað suma
valkosti tækisins.
Læsingarnúmer (einnig þekkt sem öryggisnúmer) — hægt
er að nota þetta númer (5 tölustafir) til að læsa tækinu og
hindra þannig að það sé notað í leyfisleysi. Upphaflega
númerið er 12345. Breyttu læsingarnúmerinu til að koma
í veg fyrir óleyfilega notkun tækisins. Halda skal nýja
númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri tækinu. Hafa
skal samband við þjónustuveituna ef einhver af þessum
númerum glatast.
PUK- og PUK2-númer — þessi númer (8 tölustafir) eru
nauðsynleg til að breyta lokuðu PIN-númeri eða PIN2-
númeri. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu skaltu
hafa samband við símafyrirtækið sem lét þig fá SIM-
kortið.
UPUK-númer — þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt
til að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef númerið fylgir ekki
með USIM-kortinu skaltu hafa samband við
símafyrirtækið sem lét þig fá USIM-kortið.

Verkfæri
112
Vottorðastjórnun
Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð
til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.
Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir
þau heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu. Ýttu á
til
að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er til staðar.
Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka, öðru
vefsvæði eða miðlara þar sem trúnaðarupplýsingar eru
sendar. Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna á
vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu og
settur upp í tækinu.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr
þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi
fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér.
Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð eða
tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru
bundin tilteknum tíma. Ef textinn
Vottorð útrunnið
eða
Vottorð ekki enn gilt
birtist þó svo að vottorðið ætti að
vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og tímasetning er á
tækinu.
Upplýsingar um vottorð skoðaðar —
áreiðanleiki kannaður
Aðeins er hægt að vera viss um rétt kenni miðlara þegar
búið er að kanna undirskrift og gildistíma
miðlaravottorðsins.
Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef
tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.
Upplýsingar um vottorð eru skoðaðar með því að fletta að
því og velja
Valkostir
>
Upplýs. um vottorð
. Þegar
upplýsingar um vottorð eru opnaðar er gildi vottorðsins
kannað og einhver af eftirfarandi athugasemdum getur
birst:
•
Vottorði ekki treyst
— Þú hefur ekki valið vottorðið
fyrir nein forrit. Sjá ‘Trauststillingum breytt’ á bls. 112.
•
Vottorð útrunnið
— Gildistími vottorðsins hefur runnið
út.
•
Vottorð ekki enn gilt
— Vottorðið hefur ekki enn tekið
gildi.
•
Vottorð skemmt
— Það er ekki hægt að nota vottorðið.
Hafðu samband við útgefanda vottorðsins.
Trauststillingum breytt
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og að
það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.
Flettu að heimildavottorði og veldu
Valkostir
>
Stillingar
f. traust
. Listi birtist yfir forritin sem geta notað vottorðið.
Dæmi:

Verkfæri
113
•
Symbian-uppsetning
:
Já
— Vottorðið getur sannreynt
uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.
•
Internet
:
Já
— Vottorðið getur sannreynt miðlara.
•
Uppsetning forrita
:
Já
— Vottorðið getur sannreynt
uppruna nýrra Java
TM
forrita.
Veldu
Valkostir
>
Breyta still. f. traust
til að breyta
gildinu.
Öryggiseining
Til að skoða eða breyta öryggiseiningu (ef hún er í boði) í
Öryggiseining
skaltu fletta að henni og ýta á
skruntakkann. Flettu að öryggiseiningu og veldu
Valkostir
>
Öryggisupplýsingar
til að skoða nánari
upplýsingar um hana.