
Símtalsstillingar
Senda mitt númer
— Þú getur valið að leyfa þeim sem þú
hringir í að sjá símanúmerið þitt (
Já
) og að leyfa það ekki
(
Nei
). Einnig kann símafyrirtækið eða þjónustuveitan að
velja aðra hvora stillinguna fyrir þig þegar þú gerist
áskrifandi (
Stillt af símkerfi
) (sérþjónusta).
Símtal í bið
— Ef þú kveikir á þessari stillingu (sérþjónusta)
lætur símkerfið þegar hringt er í þig þegar símtal er í gangi.
Stilltu valkostinn á (
Gera virkt
) eða slökkt (
Ógilda
), eða
fáðu upplýsingar um stöðuna (
Athuga stöðu
).

Verkfæri
106
Hafna símtali með SMS
— Veldu
Já
til að senda
textaskilaboð til þeirra sem reyna að hringja í þig þar sem
þú lætur þá vita af hverju þú getur ekki svarað símtalinu.
Sjá ‘Símtali svarað eða hafnað’ á bls. 70.
Texti skilaboða
— Skrifaðu textann sem er sendur í
skilaboðum þegar þú hafnar símtali.
Mynd í myndsímtali
— Ef tækið hefur verið stillt á að
senda ekki hreyfimynd í myndsímtölum er hægt að velja
kyrrmynd sem birtist þess í stað.
Sjálfvirkt endurval
— Veldu
Virkt
og þá gerir tækið allt að
tíu tilraunir til að koma símtalinu á ef það náðist ekki í
fyrstu tilraun. Slökkt er á sjálfvirka endurvalinu með því að
ýta á
.
Samantekt e. hring.
— Veldu þessa stillingu til að láta
tækið birta í stutta stund upplýsingar um áætlaða lengd
hvers símtals að því loknu.
Hraðval
— Veldu
Virkt
og þá er hægt að hringja í númerin
sem eru tengd við hraðvalstakkana (
-
) með því
einu að halda tökkunum inni. Sjá einnig ‘Hringt með
hraðvali’ á bls. 66.
Takkasvar
— Veldu
Virkt
til að geta svarað mótteknu
símtali með því að styðja á hvaða takka sem er, fyrir utan
, ,
og
takkana.
Lína í notkun
— Þessi stilling (sérþjónusta) sést aðeins ef
SIM-kortið styður tvær símalínur, þ.e. tvö númer í áskrift.
Veldu hvaða símalína er notuð til að hringja og senda
textaskilaboð. Hægt er að svara símtölum á báðum línum,
burtséð frá því hvor línan hefur verið valin. Ef þú velur
Lína
2
og hefur ekki gerst áskrifandi að þessari sérþjónustu
geturðu ekki hringt úr tækinu. Ef lína 2 hefur verið valin
birtist
táknið þegar tækið er í biðstöðu.
Ábending! Skipt er á milli símalínanna með því að
halda inni
takkanum í biðstöðu.
Línuskipting
— Til að hindra að skipt sé á milli lína
(sérþjónusta) skaltu velja
Gera óvirka
ef SIM-kortið styður
það. Nauðsynlegt er að hafa PIN2-númerið til að breyta
þessari stillingu.